Verkefnið
SINTRA – Að ná fram sjálfbærni í gegnum innri nýsköpun (Achieving Sustainability through INTRApreneurship) er 24 mánaða Erasmus+ verkefni (KA2: Strategic Partnerships for adult education) sem ætlað er að veita samþættan stuðning sem sniðinn er að þörfum fyrirtækja og stofnana til þróunar aukinnar frumkvöðlafærni, nýsköpunarhæfni og betra viðhorfs meðal bæði starfsmanna og stjórnenda. Tilgangurinn er að auka sjálfbærni fyrirtækja og stofnana.
Samstarfsaðilar
- Samræmingaraðili: Símenntunarmiðstöðin á Vesturlandi, Iceland — www.simenntun.is
- APOPSI Information Technology, Consulting and Training Ser-vices S.A, Greece — www.apopsi.gr
- Creatrix ehf, Iceland — www.creatrix.is
- Dialogue Diversity Unipessoal Lda, Portugal — www.dialogue-diversity.pt
- VE-GO-RA, Croatia — www.vegora.hr
- YSBF Youth in Science and Business Foundation, Estonia — www.ysbf.org
- Tora Consult Ltd., Bulgaria — www.toraconsult.com
MARKHÓPAR
Markhópar verkefnisins eru starfsfólk og stjórn-endur úr viðskiptalífinu og opinbera geiranum sem hafa áhuga á að stuðla að aukinni sjálf-bærni fyrirtækis þess eða stofnunar með innri nýsköpun og frumkvöðla-starfi
Markmið verkefnisins
- Að skilja betur samhengi lands og sviðs þess geira sem starfað er í varðandi sjálfbærni í umhverfis-málum, samfélagi og efnahagsmálum út frá sjónarhorni innri nýsköpunar og til að bera kennsl á gloppur í nýsköpunar– og innra frumkvöðlahugarfari á vettvangi skipulagsheilda.
- Að skapa í sameiningu þjálfunaraðferðir, verkfæri og námsefni í nýsköpun til að sameina sjálfbærnimiðaða innri frumkvöðlaþjálfun og ráðgjöf í eina samþætta aðferð í þeim tilgangi að bæta umhverfisáhrif fyrirtækja og stofnana og sjálfbærni þeirra í samfélagslegu og viðskiptalegu tilliti.
- Að útvega stofnunum og fyrirtækjum þjálfunarvinnustofur og ráðgjöf í sjálfbærni og stuðla að aukinni innri nýsköpun sem getur leitt til nýrrar eða bættrar vöru og þjónustu með jákvæðum áhrifum í átt að sjálbærni.
- Að yfirfæra niðurstöður verkefnisins til annarra þjóða með því að setja upp vefvettvang og einnig að útbúa verkfærakistu fyrir sjálfbærnimiðað innra frumkvöðlastarf.
Væntanlegar niðurstöður
- Gloppugreining á landsvísu og á sviði starfseminnar varðandi sjálfbærni í umhverfismálum, samfélagi og efnahag út frá sjónarhorni innra frumkvöðlastarfs. Greining á bestu leiðum sem hægt er að nota í menntun og þjálfun fyrir starfsfólk og stjórnendur.
- Þróun á námskrá SINTRA, þjálfunaraðferðum, aðferðafræði og námsefni fyrir starfsfólk og stjórnen-dur vegna sjálfbærnimiðaðs innra frumkvöðlastarfs. Aukin færni starfsfólks og stjórnenda í sjálfbærnimiðuðu innra frumkvöðlastarfi með innleiðingu vinnustofa og ráðgjafaþjónustu.
- Þróun á gagnvirkum netvettvangi sem mun auðvelda prufunám markhópa verkefnisins og fjarnám fyrir starfsfólk og stjórnendur sem er áhugasamt um sjálfbærnimiðað innra frumkvöðlastarf eftir að verkefninu lýkur.
- Þróun opinnar verkfærakistu í nýsköpun sem mun hjálpa starfsfólki stofnana að safna hugmyndum og bæta vörur, þjónustu og ferla innan stofnunar í átt að aukinni umhverfisvernd og sjálfbærni í félags– og efnahagslegu tilliti.
Fréttir
Fyrsti aþjóðlegi SINTRA fundurinn
Vegna COVID-19 ferðatakmarkana var fyrsti alþjóðlegi fundur verkefnisins haldinn á netinu dagana 10. og 11. September 2020. Góður árangur náðist á fundinum sem haldinn var í gegnum Microsoft Teams.
Á fundinum ræddu þátttakendur hvaða niðurstöður þeir vildu fá út úr verkefninu en einnig var rætt um mikilvæga praktíska þætti og fjármálastjórnun verkefnisins.
Kynningarhlutinn var einnig kynntur og ræddur og margar mikilvægar ákvarðanir voru teknar varðandi kynningu verkefnisins. Að endingu kynnti samræmingaraðili gæða– og matsþætti sem lagði grunn að því að árangri verði náð í verkefninu.
Kynning á námsafurð 1—Góðir starfshættir og gloppugreining
Innleiðing á “Sjálfbærni með innra frumkvöðlastarfi—landsnám og gæðastarf” hófst í öllum þátttökuríkjunum í október 2020. Innleiðing á fyrsta skrefi SINTRA verkefnisins snýst um að athuga vandlega þróunarstöðu ríkisins á sjálfbærni í umhverfis-, samfélags– og efnahagsmálum. Einnig er mik-ilvægt að bera kennsl á þá þætti sem eru komnir langt og búa yfir auknum sjálfbærnimöguleikum sem tengist þeim jákvæðu áhrifum sem innra frumkvöðlastarf hefur á sjálfbærni á einn eða annan hátt.
Þessi athugun ásamt könnunum vegna gloppugreiningu og viðtölum verða unnin í næsta þrepi innan ramma IO1 og munu þjóna þeim tilgangi að laga þær gloppur sem fyrir eru í sjálfbærnimiðaðri innri frumkvöðlaþjálfun fyrir starfsfólk og stjórnendur í þátttökuríkjunum. Tengdum verkefnum lauk í nóvem-ber 2020 og niðurstöður þeirra er að finna á vefsíðu verkefnisins.